Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit

Stutt í guggu-partýiđ

19. október 2008 klukkan 16:13
Jæja nú fer þetta að skella á :)

  • Hvenær: kl.20:00
  • Hvar: Furugrund hjá Áslaugu
  • Í boði: Gjöööðveik Bolla og sælgæti
  • Á dagskrá: myndashow og leikir
  • Þema: Fótboltatreyja og fótbolta sokkar (en að sjálfssögðu mega pæju dress undir) Eða bara slá þessu saman í eitt!!



Þar sem það er kreppa neyðumst við til að deila kostnaði af lið nr.3 Þegar það er komið loka loka tala munum við senda á ykkur upphæð og reikn.nr.

Heimilisfangið er Furugrund 76 í Kópavogi beygið niður smá brekku á ljósum nr. 2 (sama hvoru megin þið komið) af nýbýlaveginum


Hvernig er svo stemmarinn!!!
Cool
Meistaraflokkur kvk
5 athugasemdir

13.dagar !

12. október 2008 klukkan 17:42
Jæja núna eru 13 dagar í reunion, það eru nokkrar búnar að staðfesta komu eða ókomu sína Cool
Það væri gott ef að þið gætuð kommentað sem fyrst um það hvort að þið komist eða ekki.

Þær sem eru búnar að staðfesta komu sína eru :

  • Adda Bjarna
  • Anna Sigurðar
  • Arna Sigríður
  • Áslaug
  • Birna Páls
  • Edith
  • Heiða
  • Ingibjörg Þórdís
  • Karen Ólafs
  • Karitas
  • Kristín Gríms
  • Sigrún Harpa
  • Dúfa
  • Valdís
  • Tinna Gunnars
  • Tinna Hrund
  • Jónína
  • Katerina
*Endilega látið bæta ykkur á listann sem fyrst... þetta verður craaaazzzzzzyyy !!!!

En allavegana þá stendur planið þannig að hittast Laugardaginn 25.okt í furugrund heima hjá Áslaugu.
Og planið er að hafa bollu, þetta er verður flottasta bolla sem sögur fara af !!!!
Búningaþema, allir að koma með komment með hugmyndum um þema takk Cool
Myndashow, vá hvað við vorum asnalegar þegar við vorum yngri hahahaha

Þær sem eru staddar fyrir vestan eða norðan, bara sameinið í bíla til að splitta kostnaði, þetta gerist ekki á hverjum degi Tongue out


Meistaraflokkur kvk
14 athugasemdir

Jćja guggur ungar sem aldnar

06. október 2008 klukkan 19:50
Nú er loksins komið að endurfundum aðal fótboltagellanna að vestan, besta knattspyrnuliði kvenna á norðanverðum Vestfjörðum.

Takið frá laugardaginn 25.október og látið vita í komment ef þið komist.

  • Hvenær: Laugardagurinn 25.október
  • Hvar: Kópavogi - Furugrund.
  • Hverjir: Gömlu fótboltaguggurnar
  • Hvað: Djamm
Við erum búnar að senda sms á flestar en það gæti vel verið að við höfum gleymt einhverri svo endilega látið boðið berast til þeirra sem hafa æft eða spilað fótbolta fyrir vestan á unglingsárum/menntaskólaárum. Það muna nú allar eftir því hvað fótboltadjömmin voru skemmtileg ;) Hjálpuðu okkur meira að segja að sigra síðasta leik sem mfl-kvk spilaði f. vestan hehe

Endilega kommentið á þetta og nánari upplýsingar verða settar inn síðar.
2.flokkur

mfl-kvk

Kv. gugga og gugga a.k.a. Áslaug og ValdísKoss
Meistaraflokkur kvk
43 athugasemdir

Ţessi fćrsla er lćst međ lykilorđi.

23. júlí 2008 klukkan 17:09
Meistaraflokkur kvk
6 athugasemdir

ţađ er komiđ á hreint...

28. maí 2008 klukkan 22:16
Okei stelpur við ætlum að hittast og spila bolta á þriðjudögum og fimmtudögum kl 20:30 á gervigrasinu Ísó ... Endilega látið þetta berast og mæta sem flestar þegar þið getið!
STUРSTUРSTUР:)
Meistaraflokkur kvk
2 athugasemdir

sumariđ!

14. maí 2008 klukkan 20:06

Hey girls!

Hverjar eru til í boltasprikl í sumar og verða á svæðinu? Endilega kommentið.
Kv Helga Guðrún

Meistaraflokkur kvk
13 athugasemdir

Páskabolti

06. mars 2008 klukkan 22:52
Þar sem styttist í páskana og flest allar gamlar fótboltahetjur eru að koma vestur er það ekki? Þá er nú árlegt að hafa páskaleik, og eigum við nokkuð að breyta útá vananum? Eigum við ekki að stefna að því að hitta og spila?
Skrifum bara í komment hvaða dagur hentar ykkur best og finnum svo í sameiningu hvenær við hittumst:)
Hlakka til að hitta ykkur allar, ég held að ég sé komin með fráhvarfseinkenni frá fótbolta, þar sem ég, Anna, Lísa og Ólafía eru einar hér og ekki er hægt að gera mikið 4!Óákveðinn
En endilega kommentið:)
Kveðja Hildur María
Meistaraflokkur kvk
27 athugasemdir

fótbolti á fimmtudögum

30. janúar 2008 klukkan 11:17
hæhæ
við erum búnar að breyta... nú er alltaf fótbolti á fimmtudögum kl 22:10 í stóra íþróttahúsinu, og við erum með stóran sal núna!:D
ALLAR AÐ MÆTA, SJ'AUMST Á FIMMTUDAGINN:D
Kveðja Hildur;)
Meistaraflokkur kvk
Engin athugasemd

Bolti á ţriđjudag

20. janúar 2008 klukkan 21:43
hæhæ, ég fékk tíma í íþróttahúsinu (stóra) á þriðjudagskvöldið kl 21. Eina sem var laust því miður Lísa því þú kemst ekki þá:(
En eina sem var laust var 1/3 af salnum og ég tók það því það er alveg nóg pláss fyrir okkur þar sem við erum ekki það margar? eða er það ekki? Endilega skrifið hér hvort þið ætlið að koma á þriðjudaginn og endilega segið öllum stelpunum frá þessu!!! Förum nú að hittast og leika okkur, við getum svo alveg hisst úti líka einhverntímann.

Kveðja Hildur
Meistaraflokkur kvk
1 athugasemd

Bolti??

15. janúar 2008 klukkan 12:49
Stelpur eruði til í að spila bolta eitt kvöld í vikunni/næstu viku?? Hvenær komast sem flestar, hægt að ath. með tíma í stóra íþr. húsinu, litla eða í Bolungarvík. Svo bara úti ef veður leyfir... Við erum alveg nógu margar til að hittast 1-2 í viku og gera eitthvað er það ekki?

Lísa, Anna, Ólafía, Anna, Hildur, Helga Guðrún, skíðastelpurnar ef þær komast einhvern tímann, Elín Sveins??? Bara hóa eins mörgum og við getum, látið vita í komment

kv. Hildur og Helga Guðrún
Meistaraflokkur kvk
7 athugasemdir